BÍLSKÚRSGERVIGREIND


 

+ MARKMIÐ: SMÍÐA KERFI MEÐ GERVIGREIND
Í BÍLSKÚRNUM HEIMA HJÁ SÉR

+ AÐFERÐ: ALLT ER LEYFILEGT! HÆGT ER AÐ NOTA
HUGBÚNAÐ OG LEIÐBEININGAR
FRÁ
GERVIGREINDARSETRI HR OG HVAÐA ÖNNUR
TÆKI OG TÓL SEM ER (þar með talið drasl úr bílskúrnum)

+ TAKMARK: AÐ SKEMMTA SÉR OG ÖÐRUM - OG LÆRA Í LEIÐINNI.



 
  Gervigreind: Hvað er það?
Af hverju ætti ég að taka þátt í bílskúrsgervigreindinni?
Ósk eftir aðstð: Opið bréf til kennara, leiðbeinenda og skólastjóra
Er Bílskúrsgervigreindin bara fyrir stráka? (Nei!)
 

HUGBÚNAÐUR     VÉLBÚNAÐUR

ALMENN UMRÆÐA á ISIR Spjall


Afkomendur mannkyns

— grein um framtíð gervigreindar eftir
Hrafn Þorra Þórisson,
sigurvegara í Ungir Vísindamenn 2004

Hvað er (bílskúrs)gervigreind?

— grein eftir dr. Kristinn R. Þórisson
sem birtist í fylgiblaði RANNÍS með
Morgunblaðinu þann 21. sept. 2005

Gervigreind: Hvað er það?

Íslendingar hafa lengi vel þekkt til gervigreindar, aðallega í gegnum bíómyndir eins og Terminator, A.I.:Artificial Intelligence og iRobot. Fyrir mörgum þeirra sem hafa ekki kynnt sér gervigreind nánar vísar hugtakið því fyrst og fremst til stórra véla með austurrískan framburð sem hafa af einhverjum ástæðum einsett sér að hertaka jörðina. Gera má ráð fyrir að flestir séu að einhverju eða öllu leyti sammála eftirfarandi fullyrðingum:

  • Greindar vélar eru hættulegar
  • Greindar vélar eins og þær sem við sjáum í bíómyndum eru fjarlægur draumur
  • Það er aðeins á færi sérfræðinga að viðhalda og skapa gervigreindar vélar

Þótt vissulega sé gervigreind flókið fyrirbaeri höfum við í Gervigreindarsetri HR nú sannað að sú síðasta er alls ekki lengur sönn. Eins og verkefnin sem kynnt voru í Húsdýragarðinum sanna getur ungt og efnilegt fólk smíðað skemmtileg og frumleg gervigreindarkerfi.

En hvað með hinar tvær fullyrðingarnar? Eru þessi kerfi virkilega eins hættuleg og Hollywood vill af láta? Það er ein af þeim spurningum sem bílskúrsgervigreindin getur hjálpað fólki við að svara, með því að leyfa þeim að skoða þessar svokölluðu hættur upp á eigin spýtur.

Þróun gervigreindar er að margra mati höfuðmál og ekki seinna vænna en að hún öðlist öflugri stuðning á Íslandi, en Ísland er tæknilega mjög vel sett til að stunda rannsóknir á þessu sviði. Lítið sem ekkert hefur verið gert á Íslandi á sviði gervigreindar. CADIA opnar nýjar dyr; allt í einu er gervigreind komin til Íslands og ímyndin sem Hollywood hefur skapað orðin raunverulegri en nokkurntíma. Líklegt er að gervigreind komi til með að breyta mörgu á næstu áratugum í hinum vestræna heimi.

 

Af hverju ætti ég að taka þátt í bílskúrsgervigreindinni?

Spennandi grein. Gervigreind er ung og spennandi grein sem mun skipta æ meira máli í þjóðfélaginu á komandi árum og áratugum. Tölvuleikir og véldýr eins og AIBO eru rétt byrjunin.

Menntun. Mennt er máttur. No shit. Hvernig heldur þú að störf við vélmenni og gervigreindarkerfi framtíðarinnar verði launuð? Það er einfalt: Mjög vel! Hver vill ekki vera á topp launum við að finna upp framtíðina?

 

 

 

 

CADIA
cadia@ru.is  |  Kringlan 1, IS -103 Reykjavík
Tel: +354 510 6427  |  Fax: +354 510 6201