User Tools

Site Tools


public:bilskursgervigreind:verdlaun

Sigurvegarar 2007

Bílskúrsgervigreind

Verðlaunagripur keppninnar

Verðlaun 2006

Verðlaunahafar í bílskúrsgervigreindarkeppninni 2006:

Steinþór Steingrímsson: Talgervill sem talar íslensku

Fyrir hagnýtustu gervigreindina

Notandi slær inn íslenskan texta og talgervillinn les hann upphátt.
Við smíði talgervilsins var notast við Festival-vélina frá Center for Speech
Technology Research í Edinborg.
Íslenski talgervillinn var hluti af lokaverkefni í meistaranámi í tungutækni
við Edinborgarháskóla.



Freysteinn Alfreðsson: Hvað eru erfðaalgrím?

Fyrir bestu leiðbeiningarnar

Um erfðaalgrím (PDF)

Markmiðið með þessum leiðbeiningum er að kynna erfðaalgrím fyrir byrjendum, með því að nota eins 
einföld dæmi og kostur er. Útskýringarnar gætu hentað bæði þeim sem hafa áhuga á að kynna sér hvernig 
hægt er að láta tölvu taka ákvörðun og þeim sem hafa undirstöðu í forritun og vilja taka fyrstu skrefin 
í átt að gervigreind. 
Erfðaalgrím henta vel byrjendum í gervigreind þar sem þau eru bæði einföld og fljótleg í útfærslu. 
Sérhannað forrit hefur verið búið til fyrir þetta kennsluefni fyrir þá sem vilja sjá hvernig erfðaalgrímið 
virkar. Forritið heitir GAHello og er skrifað á Java forritunarmálinu. GAHello er aðgengilegt á 

http://svn.isir.is/svn/ga

Hörður Jóhansson: Sjálfvirk leitaraðferð fyrir sjálfstýrðan kafbát

Fyrir viðamestu gervigreindina

Í verkefninu var skoðað hvernig mætti bæta hefðbundnar leitaraðferðir með því að greina í rauntíma 
hliðarasónar myndir. Í ljós kemur að með því að greina myndirnar jafnóðum að þá er hægt að stytta 
talsvert tíman sem þarf til þessa að safna saman nákvæmum upplýsingum um hluti einsog t.d. ljósmyndir 
og háupplausnar hliðarsónarmyndir. Annar hluti verkefnisins var síðan útfærsla á greiningaraðferð 
sem getur greint smáa hluti í hliðarsónarmyndum. Helstu skrefin í svona greiningaraðferðum er birtujöfnun, 
svæðaskipting myndir og svo mynsturgreining á gögnunum.



Verðlaunin voru bílskúrsgervigreindarheilinn í krukku og 50 þúsund krónur.

Dómnefndina skipuðu:
Helga Waage, tæknistjóri í Hex, formaður dómnefndar
Dr. Magnús Már Halldórsson, prófessor í Háskóla Íslands
Dr. Rögnvaldur Ólafsson, prófessor í Háskóla Íslands

/var/www/cadia.ru.is/wiki/data/pages/public/bilskursgervigreind/verdlaun.txt · Last modified: 2024/04/29 13:33 by 127.0.0.1

Donate Powered by PHP Valid HTML5 Valid CSS Driven by DokuWiki