KEPPT VERÐUR Í TVEIMUR FLOKKUM:

BÍLSKÚRSGERVIGREIND og LOKAVERKEFNI

Lokaverkefni (B.Sc., M.Sc., Ph.D.) geta keppt um Lokaverkefnisverðlaunin
Öll önnur verkefni geta keppt til Bílskúrsgervigreindarverðlauna

 


ÝMISLEGT

Af hverju að taka þátt?

Gervigreind - hvað er það?

Er Gervigreind bara fyrir stráka? Nei!

HÓPAR / ÞÁTTAKENDUR 2007

HUGBÚNAÐUR

VÉLBÚNAÐUR

ALMENN UMRÆÐA á ISIR Spjall

Smelltu hér ef þú ert kennari


 
 

 

 

GERVIGREINDARKEPPNIN 2007

STOFNUÐ AF CADIA — SJÁLFUM HEIMSMEISTURUNUM Í GERVIGREIND

DAGSETNINGAR

22. september 2007: Umsókn um þátttöku þarf að skila fyrir 22 september 2007.

7. október 2007: Umsókn um þátttöku þarf að skila fyrir 7. okt. 2007.

Umsókn um þátttöku verður að fylgja greinargóð lýsing á verkefninu sem kynna á, og hvort verkefnið sé Lokaverkefni (lokaverkefni á háskólastigi — B.S., M.S. og Ph.D. — geta ekki keppt til Bílskúrsgervigreindarverðlauna, aðeins Lokaverkefnisverðauna, og öfugt). Sendið póst á: gervigreindarkeppnin@ru.is

Þátttaka verður staðfest umsækjendum eigi síðar en viku eftir. (Dómnefnd áskilur sér rétt til að hafna verkefnum þyki lýsing ekki nægilega skýr eða ef verkefni hefur engin tengsl við gervigreind eða gervigreindartækni.)

Þátttakendur skuldbinda sig til að kynna verkefni sitt á hátíðinni.

13. október: Hátíðin sjálf verður haldin 13. október 2007.

SKRÁNING

Skráning

VERÐLAUN

 

BÍLSKÚRSGERVIGREIND

Verðlaun verða veitt í Bílskúrsgervigreind fyrir verkefni í eftirfarandi flokkum:
Gagnlegasta grevigreindin
Bestu hugbúnaðareiningarnar með leiðbeiningum
Fyndnasta gervigreindin
Heiðursverðlaun dómnefndar

Verðlaun í Bílskúrsgervigreind eru veglegur verðlaunagripur og styrkur frá CCP til stuðnings áframhaldandi rannsókna að upphæð 50.000 ISK. Og svo náttúrulega heiðurinn. (Ein verðlaun per flokk.)

Ef verkefnið þitt er undirbúningur fyrir lokaverkefni, eða er hluti af lokaverkefni, eda ef það hreinlega ER lokaverkefni, þá máttu aðeins skrá það í Lokaverkefniskeppnina:

 

LOKAVERKEFNI

Verðlaun verða veitt í eftirfarandi flokkum fyrir Lokaverkefni tengd gervigreind:
Besta B.S. / B.Sc. verkefnið
Besta M.S. / M.Sc. verkefnið
Besta Ph.D. verkefnið

Verkefni verða að vera á svið:i gervigreindar eða tengjast thví á einhvern hátt (við erum sveigjanleg - ef þú ert í vafa, sendu bara inn).

Verðlaun í Lokaverkefnisflokki eru veglegur verðlaunagripur og styrkur frá CCP að upphæð 50.000 ISK. Og svo náttúrulega heiðurinn.

 

DÓMNEFND

Dr. Kristinn Andersen, vísindamaður og verkfræðingur hjá Marel hf, verður í forsvari fyrir þriggja manna dómnefnd sem mun velja verðlaunahafana í ár. Athugið að dómnefnd er í sjálfsvald sett hvort hún veitir verðlaun í öllum flokkum.

 

STAÐSETNING

Hátíðin verður haldin í Borgarleikhúsinu.

Nánari upplýsingar

Nánari þátttökuupplýsingar.

 

 

 

Hvað er (bílskúrs)gervigreind?

— grein eftir dr. Kristinn R. Þórisson
sem birtist í fylgiblaði RANNÍS með
Morgunblaðinu þann 21. sept. 2005

Afkomendur mannkyns

— grein um framtíð gervigreindar eftir
Hrafn Þorra Þórisson,
sigurvegara í Ungir Vísindamenn 2004

 

Gervigreind: Hvað er það?

Íslendingar hafa lengi vel þekkt til gervigreindar, aðallega í gegnum bíómyndir eins og Terminator, A.I.:Artificial Intelligence og iRobot. Fyrir mörgum þeirra sem hafa ekki kynnt sér gervigreind nánar vísar hugtakið því fyrst og fremst til stórra véla með austurrískan framburð sem hafa af einhverjum ástæðum einsett sér að hertaka jörðina. Gera má ráð fyrir að flestir séu að einhverju eða öllu leyti sammála eftirfarandi fullyrðingum:

  • Greindar vélar eru hættulegar
  • Greindar vélar eins og þær sem við sjáum í bíómyndum eru fjarlægur draumur
  • Það er aðeins á færi sérfræðinga að viðhalda og skapa gervigreindar vélar

Þótt vissulega sé gervigreind flókið fyrirbaeri höfum við í Gervigreindarsetri HR nú sannað að sú síðasta er alls ekki lengur sönn. Eins og verkefnin sem kynnt voru í Húsdýragarðinum 2005 og þátttakendur í Bílskúrsgervigreindarkeppninni 2006 sanna getur ungt og efnilegt fólk smíðað skemmtileg og frumleg gervigreindarkerfi.

En hvað með hinar tvær fullyrðingarnar? Eru þessi kerfi virkilega eins hættuleg og Hollywood vill af láta? Það er ein af þeim spurningum sem bílskúrsgervigreindin getur hjálpað fólki við að svara, með því að leyfa þeim að skoða þessar svokölluðu hættur upp á eigin spýtur.

Þróun gervigreindar er að margra mati höfuðmál og ekki seinna vænna en að hún öðlist öflugri stuðning á Íslandi, en Ísland er tæknilega mjög vel sett til að stunda rannsóknir á þessu sviði. Lítið sem ekkert hefur verið gert á Íslandi á sviði gervigreindar. CADIA opnar nýjar dyr; allt í einu er gervigreind komin til Íslands og ímyndin sem Hollywood hefur skapað orðin raunverulegri en nokkurntíma. Líklegt er að gervigreind komi til með að breyta mörgu á næstu áratugum í hinum vestræna heimi.

 

Af hverju ættir þú að taka þátt í gervigreindarkeppninni?

+ Spennandi svið. Gervigreind er ung og spennandi grein sem mun skipta æ meira máli í þjóðfélaginu á komandi árum og áratugum. Tölvuleikir og véldýr eins og AIBO eru bara byrjunin — gervigreindir útvarpsmenn, greindar vitverur í Eve-Online og fljúgandi vélmenni er smá hluti af því sem er handan við hornið.

+ Einstakt og skemmtilegt tækifæri. Gervigreindarsetur Háskólans í Reykjavík hefur undanfarin 2 ár verið að þóa tækni til að auðvelda nýbyrjendum að smíða gervigreind kerfi. Nú gefst því einstakt tækifæi til að kynnast þessu sviði nánar. Vélbúnaður og hugbúnað er hægt að nálgast á netinu (sjá hlekki hér á vinstri spássíu).

+ Vegleg verðlaun. 13 október 2007 munum við halda gervigreindaruppskeruhátíð þar sem vegleg verðlaun verða í boði fyrir þá sem hafa smíðað gervigreind kerfi sem þeir koma með á hátíðina.

+ Menntun. Mennt er máttur. No shit. Hvernig heldur þú að störf við vélmenni og gervigreindarkerfi framtíðarinnar verði launuð? Það er einfalt: Mjög vel! Hver vill ekki vera á topp launum við að finna upp framtíðina?

 


NÁNARI ÞÁTTÖKULEIÐBEININGAR

Hvernig tek ég þátt? Markmiðið er að sýna kerfi sem tengjast gervigreind. Í Bílskúrsgervigreind er mælt með hópvinnu (sérstaklega fyrir nýbyrjendur), 2-4 í hóp er góð stærð (einstaklingar og allar hópastærðir eru leyfilegar — það getur hins vegar verið auðveldara að vera fleiri í hóp þar sem þeir geta hjálpast að á erfiðum köflum).

  • Engar reglur eru um hvað má eða má ekki smíða — allt er leyfilegt.
  • Val á hugbúnaði og vélbúnaði er þáttakendum algjörlega frjálst — engar kröfur eru um að hvaða hugbúnaður, vélbúnaður eða tækni er notuð.
  • Kerfi sem hafa verið þróuð fyrir fyrirtæki eða í atvinnuskynni eru velkomin til þátttöku í hátíðinni, en geta þó ekki keppt til verðlauna.

Allir sem taka þátt fá bás til að sýna verkefnið. Básinn er 1m á breidd og 1.90m á hæð. Þar má syna veggspjöld og sýnidæmi. Þátttakendur verða að láta vita sem fyrst hvort þeir þurfa tölvur, borð eða annan búnað. Við munum reyna að hjálpa eftir bestu getu.

  • Get ég sýnt hvað sem er? Já, svo fremi sem það tengist gervigreind á einhvern hátt (við erum ekki mjög ströng með það).
  • Get ég sýnt verkefni án þess að taka þátt í keppni? Já, ef þú skráir verkefnið.
  • OK, ég tek þátt. Hvað þarf ég að gera? Búa til plakat og/eða annað efni til að útskýra verkefnið svo allir skilji. Vera á básnum og kynna þegar gestir og dómnefnd koma að skoða (milli 11 og 12 fyrir dómnefnd og svo aftur milli 15 - 17:30 fyrir gesti).

 

Allir geta tekið þátt

Já, allir sem skrá sig geta tekið þátt. Ókeypis.

Við í Gervigreindarsetri HR munum hjálpa öllum hópum eins mikið og auðið er, með leiðbeiningum, hugbúnað o.þ.h.

Hvað kostar þátttaka? Ekkert — þátttaka er ókeypis. þátttakendur þurfa að útvega efni og aðstöðu til verkefnisins sjálfir. Mælt er með því að hóparnir finni sér fulltrúa í skóla eða félagsheimili, sem getur hjálpað til við að útvega vinnu- og fundaraðstöu fyrir verkið. Eða bara heima í bílskúrnum hjá einhverjum hópmeðlimnum. Útbúa verður kynningarefni fyrir básinn — það er á ábyrgð þátttakenda að sjá um að hann sé sem flottastur.

Hvað þarf ég að kunna? A.m.k. einn í hópnum þarf að kunna eitthvað fyrri sér í forritun. Ef þú ætlar þér að smíða róbot er nauðsynlegt að hafa a.m.k. einhverja reynslu í rafeindafræðum. Kíktu á leiðbeiningarnar (hugbúnadur, vélmenni) til að gera þér betur grein fyrir nokkrum þeirra fjölmörgu möguleika sem eru fyrir hendi.

SKRÁNING

Sendið tölvupóst á gervigreindarkeppninru.is með eftirfarandi upplýsingum:

Nafn hóps / einstaklings Hvað kallið þið hópinn ykkar? / Hvaða nafn völdu foreldrar þínir að kalla þig?
Persónuupplýsingar Hemilisföng, símar, netföng — þátttakenda
Nafn hópfulltrúa (ef hópur) Tilgreinið þann sem er í forsvari fyrir hópinn
Lýsing á verkefni greinargóð lýsing á verkefninu sem kynna á (um 1-2 málsgreinar), og hvort verkefnið sé Lokaverkefni eða Bílskúrsgervigreindarverkefni (sjá skilgreiningu)
Sérstakar óskir um aðstoð Ef hópurinn/þátttakandi telur sig þurfa tæki eða hugbúnað umfram það sem er að finna á hugbúnaðarsíðunum. Við reynum að hjálpa eftir besta megni.

 

Þátttakendur búa svo síðu á ISIR.is þar sem umræður geta farið fram í spjallþráðum og á Wiki.

 


 

EF ÞÚ ERT KENNARI GETUR ÞÚ HJÁLPAÐ!

Ef þú ert með tæki eða tól sem þú gætir lánað eða gefið til átaksins...
... eða ef þú ert stjórnandi í skóla og villt hjálpa hópum á laggirnar...
... eða þú ert með tölvur sem þú vilt losna við, og vilt að við gefum tölvunum nýtt líf ...
... endilega hafðu samband í tölvupósti: bilskursgervigreindru.is til að ræða við okkur um hvernig þú gætir hjálpað.

 

LESA OPIÐ BRÉF TIL KENNARA OG ANNARRA LEIÐTOGA ->

 


 

 

 

 

 

 

CADIA
cadia@ru.is  |  Kringlan 1, IS -103 Reykjavík
Tel: +354 510 6427  |  Fax: +354 510 6201