====== E-211-NISH, Nám í stafrænum heimi, 2013-3 ====== ** Tími: ** Miðvikudagar 12.20 til 14.45\\ ** Staður: ** M117\\ ** Umsjón: ** Hannes Högni Vilhjálmsson, Ph.D. (hannes@ru.is), Kamilla Rún Jóhannsdóttir, Ph.D. (kamilla@ru.is)\\ ** Aðrir: ** Bryndís Björk Ásgeirsdóttir, Ph.D. (bryndis@ru.is), Þorlákur Karlsson, Ph.D. (thorlakur@ru.is), Rakel Sölvadóttir, Framkvæmdastjóri, Skema ehf. (rakel@skema.is), Þóra Halldóra Gunnarsdóttir, Sérfræðingur, Skema ehf. (thora@skema.is) \\ ** Facebook: ** [[http://www.facebook.com/groups/466363993455325/|NISH Hópur (group)]] ===== Lesefni ===== Kennslubók: Woolfolk. A. E. (2009). Educational Psychology. New York: Pearson. Einnig: Ýmsar greinar sem nemendur geta nálgast á innra netinu. Greinar verða settar inn jafnóðum. ===== Námskeiðslýsing og fyrirkomulag námskeiðs ===== Í þessu námskeiði er fjallað um kennslu- og námssálfræði með áherslu á hvernig nýta megi tölvutækni og hinn stafræna heim við kennslu. Áhersla er einnig lögð á virka þátttöku nemenda við að hanna og prófa nýjar kennsluaðferðir þar sem tækni og tölvur eru nýttar. Nemendur munu bæði læra grunnhugtök og kenningar í kennslu- og námssálfræði og grunnforritun. Í fyrirlestrum verður farið dýpra í efni kennslu- og námssálfræði. Þar verður sérstaklega tekið fyrir hugræn úrvinnsla, þroski og einstaklingsmunur, og áhrif hvatningar og áhugasviðs. Einnig verður hlutverk tækninnar skoðað og fjallað um samspil manneskju og tækni í tengslum við þróun kennsluaðferða. Þá verða ýmis málefni sem eru í brennideplinum hverju sinni skoðuð svo sem tæknivæðing skólanna og notkun tölvuleikja við kennslu svo dæmi séu tekin. Lögð er áhersla á að tengja fræðilegar rannsóknir og kenningar við hagnýtingu í menntakerfinu. Nemendur munu einnig kynnast starfsháttum og kennsluaðferðum Skema og fá að taka beinan þátt í forritunarkennslu barna. ===== Lærdómsviðmið ===== Að loknu þessu námskeiði á nemendi að geta: * Útskýrt grunnhugtök í kennslu- og námssálfræði. * Útskýrt grunnhugtök í forritun. * Metið og túlkað rannsóknir og rannsóknarniðurstöður á sviði kennslu- og námssálfræði. * Metið og túlkað rannsóknir og rannsóknarniðurstöður þar sem tölvur og hinn stafræni heimur er notaður sem kennsluaðferð. * Útskýrt nálgun Skema og kennsluaðferðir. * Aðstoðað við forritunarkennslu barna samkvæmt aðferðum Skema. * Hannað og prófað námsefni þar sem hinn stafræni heimur er nýttur við kennslu barna. ===== Kennslufyrirkomulag ===== **Kennslutímar:** Hópurinn hittist einu sinni í viku (þrjá kennslutíma í senn) til að kafa djúpt í eitt ákveðið efni. Kennari byrjar á því að veita nemendum innsýn í fræðin sem efninu tengjast. Að því loknu verður kynnt umræðuverkefni sem bekkurinn vinnur í 5 manna hópum. Kennarar fara á milli hópa til að aðstoða. Í lok tímans kynnir hver hópur sína niðurstöðu og opnað er fyrir almenna umræðu. Í hverjum hópi er einn umræðustjóri og einn ritari (tryggja þarf að allir spreyti sig á þessum hlutverkum). Umræðustjóri þarf að tryggja að allir í hópnum leggi eitthvað til málanna og að hópurinn nái sátt um lokaniðurstöðu. Ritari þarf að skrifa niður lokaniðurstöðu hópsins, sem síðan er skilað til kennara. Mikilvægt er að nemendur komi undirbúnir í tímann til að geta tekið þátt í umræðunni! Undirbúningur felst fyrst og fremst í lestri kafla eða greina. **Codecademy og Skema:** Utan venjulegs kennslutíma munu allir fá tækifæri til að læra forritun og að kenna forritun út frá hugmyndafræði Skema. Í viðbót við Skema vinnuna, þurfa nemendur að skila af sér ákveðið mörgum verkefnum í Codecademy, ókeypis vef sem kennir forritun frá grunni. Tölvufræðinemendur, sem þegar kunna að forrita, þurfa að veita sálfræðinemendum aðstoð við þennan námsþátt í gegnum samskiptavef og spjallrás. **Dagbók:** Nemendur halda dagbók þar sem þeir lýsa ferlinu annars vegar sem nemendur (Skema, Codecademy), og hins vegar sem leiðbeinendur. Dagbókin verður á formi blog færslu (2-3var í viku). Í lokin munu nemendur skila inn stuttri samantekt 24 október. ===== Námsmat ===== |Þátttaka í umræðuhóp | 10% (hver nemandi verður að hafa verið umræðustjóri og ritari amk 2svar) | |Kennsla hjá Skema | 10% (metið af Skema starfsfólki) | |Dagbók og Codecademy (lærdómur og leiðbeinsla) | 20% (Skilað 24. okt) | |Heimapróf | 20% (Tekið 14. okt) | |Lokaverkefni | 40% (Kynning 20%, 20. nóv. Skýrsla 20%, 28. nóv) | ===== Dagbækur nemenda ===== | [[http://nishalma.tumblr.com/|Alma]] | Ásgeir | [[http://hhermanns.tumblr.com/|Dagbjört]] | [[http://nish2013blog.tumblr.com/|Daníel]] | [[http://eddat11.tumblr.com/|Edda]] | [[http://nishingi.tumblr.com|Elías]] | [[http://gulli-nish.tumblr.com/|Guðlaugur]] | | [[http://nish-gudrun.tumblr.com|Guðrún]] | [[http://sylviatrausta2013.tumblr.com|Hólmfríður]] | [[http://nish-huldis.tumblr.com/|Huldís]] | Hörður | [[http://nishkk.tumblr.com|Kristinn]] | [[http://margretanna.tumblr.com|Margrét]] | [[http://namistafraenumheimi.tumblr.com/|Sara]] | | [[http://svanhvit12.tumblr.com/|Svanhvít]] | Valdís | | | | ===== Forritunaraðstoð ===== Þau ykkar sem kunnið einhverja forritun (allir tölvunarfræðinemar) skulið velja fastan tíma hérna að neðan, að minnsta kosti einu sinni viku, þar sem þið verðið logguð inn á [[https://www.purechat.com/Account/Login|Pure Chat]] sem leiðbeinendur (þið eruð öll skráð í kerfinu undir ru.is netfanginu ykkar og ættuð að hafa fengið tölvupóst með lykilorði). Þið reynið þá að vera amk logguð inn í um klukkustund í senn. Til að velja ykkur tíma, skrifið eiginnafn í tóma línu og hakið við þá tíma sem þið getið staðið vaktina. Athugið að **allar samræður eru vistaðar** og kennarar námskeiðsins koma til með að nota virkni tölvunarfræðinema hér til að meta "Codecademy" hluta náms þeirra. * MÁN 13 * MÁN 16 * MÁN 21 * ÞRI 13 * ÞRI 16 * ÞRI 21 * MIÐ 16 * MIÐ 21 * FIM 13 * FIM 16 * FIM 21 * FÖS 13 * FÖS 16 * FÖS 21 * LAU 13 * LAU 15 * LAU 17 * LAU 21 * SUN 13 * SUN 15 * SUN 17 * SUN 21 ===== Lágmarkskröfur ===== Nemendur þurfa að ná lágmarkseinkunn (4,75 af 10 mögulegum) úr námskeiðinu í heild. Einnig þurfa nemendur að ná lágmarkseinkunn úr hverjum námsþætti fyrir sig. ===== Forföll og skil á verkefnum ===== Hægt er að fá undanþágu eða frest til að skila inn verkefni ef um veikindi er að ræða og nemandi framvísar læknisvottorði. Ef um er að ræða brýnar persónulegar ástæður þá geta nemendur beðið fyrirfram um leyfi til að skila inn verkefni seint. Fyrir verkefnaskil gildir að sé verkefni ekki skilað inn á settum tíma og nemandi hafi ekki leyfi frá kennara eða skilað inn læknisvottorði verður dregið 10% frá heildareinkunn fyrir fyrsta daginn sem verkefni er ekki skilað inn og 5% fyrir hvern dag eftir það. ===== Ábyrgð nemenda í náminu ===== Nemendum er bent á að kynna sér reglur háskólans í Reykjavík um verkefnavinnu sjá: náms- og prófareglur http://www.ru.is/haskolinn/nams--og-profareglur/ og siðareglur http://www.ru.is/haskolinn/sidareglur-hr/ ===== Áætlun ===== ^Vika^Dags.^ Efni fyrirlestrar ^Kennari ^ | 1 | 21. ág | Kynning á námskeiði: Nám í stafrænum heimi\\ Skema: kynning | Hannes, Kamilla, Þóra (Skema) | | 2 | 28. ág | Skema: forritun með Alice og Skema hugmyndafræði | Þóra (Skema) | ^ Hluti I: Einstaklingurinn ^^^^ | 3 | 4. sept | Sjálfið, sjálfsmyndin og sjálfsmiðað nám (kafli 3 og 11) | Fyrirlestur: Kamilla\\ Umræður: Hannes | | 4 | 11. sept | Þroski, greind og einstaklingsbundar þarfir (kafli 2 og 4) | Fyrirlestur: Bryndís\\ Umræður: Hannes | ^Hluti II: Námið^^^^ | 5 | 18. sept | Atferlismiðaðar útskýringar (kafli 7) | Fyrirlestur: Þorlákur\\ Umræður: Kamilla og Hannes | | 6 | 25. sept | Námsvísindi og constructivism (kafli 10) | Fyrirlestur: Kamilla\\ Umræður: Hannes | | 7 | 2. okt | Fræðsla og tölvubyltingin (ekki í bók)\\ Lesefni: [[http://namodemello.com.br/pdf/tendencias/situatingconstrutivism.pdf|"Situating Constructionism"]] (PDF) | Fyrirlestur: Hannes\\ Umræður: Kamilla | | 8 | 9. okt | Vinnuvika | | ^Hluti III: Tæknin^^^^ | 9 | 16. okt | Tölvuleikir (ekki í bók)\\ Lesefni: [[http://www.arts.rpi.edu/~ruiz/EGDFall10/readings/RhetoricVideoGames_Bogost.pdf|"The Rhetoric of Video Games"]] (PDF) | Fyrirlestur: Hannes\\ Umræður: Kamilla | | 10 | 23. okt | Gervigreind við kennslu. Lesefni:\\ [[http://www.ru.is/~hannes/publications/AIED2005.pdf|"Serious Games for Language Learning: How Much Game, How Much AI?"]]\\ [[http://www.ccs.neu.edu/home/bickmore/publications/CHI00.pdf|"Shared Reality: Physical Collaboration with a Virtual Peer"]] | Fyrirlestur: Hannes\\ Umræður: Kamilla | | 11 | 30. okt | Náttúrulegt viðmót. Lesefni:\\ [[http://dl.acm.org/citation.cfm?doid=1518701.1518851|Comparing the use of tangible and graphical programming languages for informal science education]] | Fyrirlestur: Hannes\\ Umræður: Kamilla | | 12 | 6. nóv | Hvatning í námi (kafli 12) | Fyrirlestur: Kamilla | | 13 | 13. nóv | Tilfinningatölvun | Fyrirlestur/umræður: Hannes og Kamilla | | 14 | 20. nóv | Kynning á nemendaverkefnum | |