[[http://cadia.ru.is/wiki/public:gervigreindarkeppnin|Sigurvegarar 2007]] ====== Bílskúrsgervigreind ====== {{ :bilskursgervigreind:gervigreindarheilinn.jpg?200|Verðlaunagripur keppninnar}} =====Verðlaun 2006 ===== **Verðlaunahafar í bílskúrsgervigreindarkeppninni 2006:** ===Steinþór Steingrímsson: Talgervill sem talar íslensku=== **Fyrir hagnýtustu gervigreindina** * Kóðan má ná í hér: http://www.mindmakers.org/projects/icelandicfestival Notandi slær inn íslenskan texta og talgervillinn les hann upphátt. Við smíði talgervilsins var notast við Festival-vélina frá Center for Speech Technology Research í Edinborg. Íslenski talgervillinn var hluti af lokaverkefni í meistaranámi í tungutækni við Edinborgarháskóla. \\ \\ ===Freysteinn Alfreðsson: Hvað eru erfðaalgrím?=== **Fyrir bestu leiðbeiningarnar** {{public:bilskursgervigreind:um-erfdaalgrim.pdf|Um erfðaalgrím (PDF)}} Markmiðið með þessum leiðbeiningum er að kynna erfðaalgrím fyrir byrjendum, með því að nota eins einföld dæmi og kostur er. Útskýringarnar gætu hentað bæði þeim sem hafa áhuga á að kynna sér hvernig hægt er að láta tölvu taka ákvörðun og þeim sem hafa undirstöðu í forritun og vilja taka fyrstu skrefin í átt að gervigreind. Erfðaalgrím henta vel byrjendum í gervigreind þar sem þau eru bæði einföld og fljótleg í útfærslu. Sérhannað forrit hefur verið búið til fyrir þetta kennsluefni fyrir þá sem vilja sjá hvernig erfðaalgrímið virkar. Forritið heitir GAHello og er skrifað á Java forritunarmálinu. GAHello er aðgengilegt á http://svn.isir.is/svn/ga \\ \\ ===Hörður Jóhansson: Sjálfvirk leitaraðferð fyrir sjálfstýrðan kafbát=== **Fyrir viðamestu gervigreindina** Í verkefninu var skoðað hvernig mætti bæta hefðbundnar leitaraðferðir með því að greina í rauntíma hliðarasónar myndir. Í ljós kemur að með því að greina myndirnar jafnóðum að þá er hægt að stytta talsvert tíman sem þarf til þessa að safna saman nákvæmum upplýsingum um hluti einsog t.d. ljósmyndir og háupplausnar hliðarsónarmyndir. Annar hluti verkefnisins var síðan útfærsla á greiningaraðferð sem getur greint smáa hluti í hliðarsónarmyndum. Helstu skrefin í svona greiningaraðferðum er birtujöfnun, svæðaskipting myndir og svo mynsturgreining á gögnunum. * [[kafbatur|Nánari upplýsingar um verkefnið]] \\ \\ Verðlaunin voru bílskúrsgervigreindarheilinn í krukku og 50 þúsund krónur. Dómnefndina skipuðu:\\ Helga Waage, tæknistjóri í Hex, formaður dómnefndar \\ Dr. Magnús Már Halldórsson, prófessor í Háskóla Íslands\\ Dr. Rögnvaldur Ólafsson, prófessor í Háskóla Íslands